Innskráning

Hringurinn 2008

Skoða sem PDF skjalPrenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar


Þá langþráð stund runnin upp og við Skutlurnar lagðar í hann. Eftir kjangóða morgun súpu hjá þeim snillingunum í Árbæjarbakarí eru okkur allir vegir landsinns færir... Takk fyrir okkur strákar. :-)


Hringferð er framundan hjá Skutlunum dagana 9.-13. júlí 2008. Á landakortinu hér fyrir ofan og til hliðar sérðu áfangastaðina; við byrjum að sjálfsögðu í Reykjavík, hjólum til Hafnar fyrsta daginn, til Neskaupsstaðar annan daginn, förum þann þriðja til Akureyrar og verðum þar alla helgina, og svo höldum við heim til Reykjavíkur á sunnudeginum. 18 hjól og hjólakonur þeysast um hringveginn og Skutlumamma kemur á bíl á eftir, risastóru ferðatöskunni okkar. Á þessari síðu geturðu fylgst með ferðinni frá upphafi til enda og tekið þátt í spjallinu.


Hringferðar Skutlurnar 19.... Mundu að veifa ef þú mætir okkur..... :-)

Bloggið...
Með í "trússinum" verður lappinn og planið er að blogga og segja frá því sem á dagana drífur eins oft og við mögulega getum........ Smelltu hérna til að lesa allt bloggið frá hringferðinni


Hringferðardagur fimm... sá síðasti!
Upp rann sunnudagur á Akureyri, blíður og fagur. Skutlur veltu sér fram úr rúmunum árla dags þó að nokkrar hefðu leikið sér aftur í gærkveldi alveg undir morgun. Hvílík skemmtanaelja! Jói rækja djammaði með liðinu, hann var svo afskaplega hrærður að hafa verið með í bloggi gærdagsins að hann var nánast orðinn að rækjusalati (að eigin sögn)! Hvað um það, við vorum snarar á lappir, svona flestar, bjuggum okkur til fararinnar og tókum regngallann fram - þó að ekki væri rigning á Akureyri þá sagði spáin annað um ferðaveðrið. Fyrsta mál á dagskrá var auðvitað að kanna hjólið hennar Maríu sem gaf upp öndina í gærkveldi. Því miður hafði rafmagnið hjá Jóa ekki lífsanda í sér, hjólið var enn dautt í morgun. Þá var kallaður til vinur Jóa og þeir úrskurðuðu hjólið látið, a.m.k. tímabundið. María endaði því á fjórhjólinu með Ásu sem Ása tók í fóstur af dótturinni Hrafnhildi, megaSkutlu - og Hrafnhildur fékk því að leika sér á hjóli heim. Hjólið hennar Maríu verður ferjað á þriðjudaginn suður - takk takk, kæru Jói og vinur! Meira


Hringferðardagur fjögur.
Jú jú, ferðin heldur áfram og loksins er komið að afslöppunardegi. Það verður reyndar að segjast að skemmtanaglaðar Skutlur fóru hamförum í Akureyríska næturlífinu í gærkvöldi. Sjaldan eða aldrei hafa eins fallegar, bleikar og bláeygðar snótir slangrað um bæinn á föstudagskveldi. Sumar rétt náðu fyrir miðnætti inn í Vélsmiðjuna og þurftu ekki að borga, öðrum tókst það ekki þrátt fyrir að Gústa frænka reyndi sitt besta að sjarmera dyravörðinn. En það þýddi bara að hún var enn ákafari við dansinn þegar inn var komið. Skutlurnar töpuðu sér auðvitað allar í dansinum, og þar sem við erum allar örlátar sálir þá var hver og einn karlpeningur á staðnum, sprengilegir og minna sprengilegir, boðinn upp í dans við magnaðan undirleik Sixties. Meira


Hringferðardagur þrjú.
Mikið lifandi skelfing er nú fallegt á Neskaupsstað! En okkur gafst nú enginn tími til að skoða bæinn almennilega því Akureyri kallaði á okkur háværum rómi. Strax í bítið á föstudagsmorgni (kl. 10.30!) lögðum við afstað áleiðis yfir Oddskarðið. Þokan hafði eitthvað þykknað um nóttina en Edda var því dauðfegin - lofthræðslan hvarf á braut eins og dögg fyrir þoku. Við stöldruðum stutt við á Eskifirði, sáum Reyðarfjörð í mýflugumynd og brunuðum inn í Fagradalinn. Kókópuffsið sem hafði valdið óróa var ekkert til að tala um, það má sannarlega segja að ekkert, bókstaflega ekkert, stöðvar Skutlur í dag. Við fundum vel hvernig hitinn hækkaði eftir því sem nær dró Egilsstöðum, þar tókst okkur loksins að sjá til sólar og auðvitað lögðust allar í sólbað við bensínstöð N1 við mikinn fögnuð karlpeningsins á staðnum. Meira


Hringferðardagur tvö

Sjúddirallírei - dagur tvö er að kveldi komin og mikið erum við þreyttar og ánægðar. Vöknuðum sælar og rjóðar eftir væna nótt á Höfn, Ása sló öll met og svaf í 11 klukkutíma, frá 10 til 9, þessi líka mikla morgunhæna! Við vorum svo heppnar í gærkveldi að fá góða gjöf frá Lancomé sem kemur að góðum notum, fullt af snyrtivörum til að halda okkur síungum og fallegum! Kærar þakkir, Lancomé! Morgunverður var snæddur í bakaríi staðarins og sumar skelltu sér í sund. Í bakaríinu kom í ljós að yfirbakarinn var fertugur þennan dag og við sungum afmælissönginn fyrir hann í tilefni dagsins. Honum var reyndar ekki boðið á rúntinn, hann hefði þurft að vera fimmtugur og auðvitað kvenkyns til þess! Reyndar herma staðfestar fréttir að hann hafi snapað sér „deit" við jómfrúna. Hvenær af því verður veit engin nema þau tvö! Meira


Hringferðardagur eitt.
Þá eru allar Skutlur búnar að skila sér á áfangastað sem er Höfn í Hornafirði eftir góðan akstur fyrsta daginn. Allar heilar, engin sár, allar kátar, liggalá!

Við hófum daginn hjá Villa og félögum í Árbæjarbakarí klukkan 9 þar sem boðið var upp á gómsæta heita súpu og brauð og meðlæti og kunnum við Skutlur þeim bestu þakkir fyrir. Saðningurinn lagðist ljúflega í okkur og veitti góða næringu fyrir ferð dagsins. Eftir ferðabæn sérans var svo haldið af stað, galvösk stjórn Skutlanna hafði tímasett dagskrá dagsins mjög vel og við héldum áætlun alveg eins og herforingjar. Hópurinn hjólaði í þremur hollum til að stuða ekki landann og útlandann á ferð um landið - auk þess sem hraði hópanna var aðeins misjafn (látum samt ekkert uppi með það!). Meira

33 tímar í brottför

Við fjölskyldan komum heim eftir rúmlega viku frí í Svíþjóð og Danmörku í gærkvöldi. Tilgangur ferðarinnar var að styðja Stjörnuna á Partille Cup handboltamótinu sem haldið var í Gautaborg síðastliðna viku. Á mótinu voru um 15.500 þátttakendur alls um 910 lið frá 50 löndum sem spiluðu handbolta á 51 útivelli. Það var einstök upplifun að fylgjast með öllum þessum fjölda spila handbolta úti í 30 stiga hita og sólskini. Þar að auki var Bruce Springsteen með tónleika bæði á föstudagskvöldinu og laugardagskvöldinu, svo mannfjöldinn í borginni var gífurlegur og útihátíðarstemmning í hvívetna. Meira

Upprifjun
Við Skutlur ræddum það fyrir mörgum mánuðum að það væri sniðugt að fara í svona upprifjunar-ökutíma og taka keilur, U-beygjur, snigl, hemlun og allt það sem maður er að gera þegar maður lærir á bifhjól. Svo var það 1.maí að við svifum á Njál ökukennara og spurðum hann hvort hann væri til í taka okkur í svona tíma, og þessi tími var sem sagt þriðjudagskvöldið 1.júlí. Meira

Fyrirtíðarspenna vegna hringferðar
Oh boy and girl, bara nokkrir dagar í hringferð okkar Skutlanna árið 2008! Ágætu vegfarendur: Búið ykkur undir smá titring á þjóðvegi 1 dagana 9.-13 júlí því Skutlurnar mæta á svæðið! Látið ykkur ekki bregða þó að eitthvað bleikt fljúgi framhjá á ógnarhraða (en samt löglegum!); það eru bara við, brosandi út að eyrum og alsælar með að biðin skuli loks vera á enda. Meira

Spjallið...
Á spjall síðunni okkar hefur verið settur inn sér þráður fyrir hringferðina okkar þetta árið. Við ætlum að vera í sambandi, en þú ? smelltu endilega hérna og sendu okkur línu á spjallinu... og við svörum öllum um leið og við höfum tök á.

Myndirnar...
Með í för verða nokkrar myndavélar, video-vél og aðrar græjur til að grípa augnarblikin, sem væntanlega vera ekki fá í ferðinni. Við munum reyna eftir fremsta megni að setja myndirnar inn á vefinn á meðan á ferðinni stendur, en það fer þó nokkuð eftir aðstæðum hvort það verður hægt.

Myndirnar frá öllum vélum munu skila sér inn næstu daga... svo líttu endilega við aftur!

 

Heimsókn til NjálsViðtal hjá Ísland í dag

Viðtalið - Ísland í dag

Morgunblaðið
9. júlí 2008
Brottför
Súpa í Árbæjarbakarí
Dagur 1Dagur 2Dagur 3Dagur 4Dagur 5
    
Ýmislegt    

Svo getur þú skoðað myndirnar frá hringferðinni 2007 hérna, og aðrar myndir á heimasíðunni okkar hér.

Velunnarar...



 

KIA styður við ferð Skutlanna um landið með því að leggja til Kia Carens bifreið sem mun hýsa allan farangur skutlanna. Við stýrið verður Ásthildur Skutlumamma og er bensínfótur hennar þegar farinn að titra af tilhlökkun.

Skutlumamma, Ásthildur Kristín Einarsdóttir (t.v.) og Íris Sigurðardóttir, tóku við lyklum að Kia Carens bifreiðinni sem mun fylgja Skutlunum eins og skugginn á leið þeirra um landið.

Ps...
Kvittaðu endilega í gestabókina okkar.....

Hjóla kveðja,
Skutlurnar



Segðu frá þessu á:
Facebook!
Hits: 1567
Comments (0)Add Comment

Write comment
You must be logged in to post a comment. Please register if you do not have an account yet.

busy
Sumarið 2007 skelltum við okkur hringinn í kringum landið. Ferðin var alveg geggjuð og margt skondið gerðist. Hérna getur þú lesið ferðasöguna 2007. 
Árið 2008 endurtókum við leikinn og fórum annan hring. Ferðin var frábær í alla staði og Skutlurnar skemmtu sér hið besta. Hérna getur þú lesið ferðasöguna 2008. 

Þetta árið er stefnan tekinn á "hálf"-hring norður og er ætlunin að þeysa um nærsveitir norðurlands okkur og öðrum til skemmtunar. Fylgstu með ferðasögunni.