Innskráning

Skutlurnar og sagan

Skoða sem PDF skjalPrenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

Það gerist ekki á hverjum degi að áhugasamar bifhjólakonur komi saman og stofni klúbb. En sá merkilegi atburður átti sér þó stað að sumri til árið 2005. Líklega er ekki hægt að finna einn sérstakan dag þar sem allt hófst, en við getum hins vegar fundið konuna sem kom klúbbnum á koppinn. Sú heitir Ásthildur Einarsdóttir en hún hafði afskaplega gaman af að kíkja niður í bæ og skoða hjól og hjólamenn á fögrum sumarkvöldum. Ásthildi tókst að smala saman nokkrum konum sem deildu áhuga hennar á mótorhjólum og ákveðið var að stofna sérstakan kvenhjólaklúbb þar sem enginn slíkur var starfandi á Íslandi. Stofnfundur klúbbsins var haldinn í ágúst á Salatbar Eika í Faxafeni. Fundarstjóri var Geir Jón Þórisson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, og fengu stofnfélagar örlítinn fyrirlestur um umferðaröryggi í leiðinni. Stofnfélagar klúbbsins voru 14 talsins, sumar stöldruðu stutt við en aðrar eru enn hluti af hópnum. Fundurinn tók einnig ákvörðun um nafn á klúbbinn og varð ofan á að gefa honum nafnið Kvenhjólaklúbburinn Skutlurnar. Eftir fundinn keyrðu Skutlurnar rúnt um bæinn og máluðu hann bleikan! Frá stofnfundi hafa Skutlur gert margt og mikið. Þær höfðu hægt um sig fyrsta veturinn en hófu fjörið að kappi sumarið 2006. Reglulegur fundartími þeirra er á þriðjudagskvöldum en fundarstaðir hafa verið nokkrir. Skutlurnar hafa farið víða, aðallega styttri og lengri ferðir um suðvesturhornið. Sumarið 2007 var þó algert ævintýrasumar, Skutlurnar fóru m.a. á Snæfellsnesið í byrjun júní og svo hringinn í kringum landið í lok júní. Sú ferð var vitaskuld frábær og verður endurtekin á hverju ári í framtíðinni. Að auki viðra Skutlur hjólin sem allra oftast, hvenær sem er og hvernig sem viðrar. Ekkert stöðvar Skutlurnar þegar þær eru komnar á skrið! Haustið 2006 tóku Skutlurnar sig til og bjuggu til heimasíðu til að kynna starfsemi klúbbsins. Hún hefur smám saman þróast og getur vonandi orðið til þess að skapa jákvæða mynd af konum á mótorhjólum. Í upphafi ársins 2007 varð merki Skutlanna til og og sjást þær nú langar leiðir því bleika merkið er engu líkt! Saga Skutlanna er enn í mótun því klúbburinn er ungur og á vonandi langa og viðburðaríka ævi framundan. Allar nánari upplýsingar um klúbbinn er að finna á heimasíðu hans, www.skutlur.is.


Segðu frá þessu á:
Facebook!
Hits: 2085
Comments (0)Add Comment

Write comment
You must be logged in to post a comment. Please register if you do not have an account yet.

busy
Sumarið 2007 skelltum við okkur hringinn í kringum landið. Ferðin var alveg geggjuð og margt skondið gerðist. Hérna getur þú lesið ferðasöguna 2007. 
Árið 2008 endurtókum við leikinn og fórum annan hring. Ferðin var frábær í alla staði og Skutlurnar skemmtu sér hið besta. Hérna getur þú lesið ferðasöguna 2008. 

Þetta árið er stefnan tekinn á "hálf"-hring norður og er ætlunin að þeysa um nærsveitir norðurlands okkur og öðrum til skemmtunar. Fylgstu með ferðasögunni.