Innskráning

Almennar fréttir

Tillögur til nýrra laga

Skoða sem PDF skjalPrenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

Samkvæmt nýju lögunum mun lágmarksaldur fyrir almenn mótorhjólaréttindi (A2) færast úr 17 ára í 20 ára eða um þrjú ár. Skellinöðrupróf (M-réttindi) má taka 15 ára en munu færast upp í 16 ár samkvæmt nýju umferðarlögunum. Næsti réttindaflokkur á eftir því eru A1 réttindi sem gilda fyrir 125 rsm hjól sem eru 15 hestöfl að hámarki. Þetta eru ný réttindi í íslenskum lögum en hafa verið lengi við lýði í flestum Evrópulöndum, þar sem að flest þeirra miða við 16 ára lágmarksaldur. Einhverra hluta vegna er það þannig í lögunum að miðað verður við 18 ár á Íslandi sem hefur þau áhrif að næstu réttindaflokkar færast til sem því nemur. Þess vegna mun svokallað minnapróf fyrir mótorhjól (A2) færast upp í 20 ára og full réttindi (A) í 22 ára hið fyrsta. Vegna stigskiptingarinnar getur sá sem er yngri en 24 ára aldrei fengið full réttindi strax og verður því að byrja á minnaprófi. Það er ekki fyrr en fólk er orðið 24 ára að það getur tekið full réttindi strax á mótorhjól, en nú er sá viðmiðunaraldur 21 árs.


Annað dæmi um breytingu á umferðarlögum er að nú mun það verða ólöglegt að reiða þá sem eru undir 150 sm á hæð. Eini svokallaði rökstuðningurinn með þessari breytingu er sá að þetta sé til samræmis við lágmarkshæð vegna verndarbúnað í bifreiðum, samanber öryggispúða.


Segðu frá þessu á:
Facebook!
 

Hópakstur mótorhjólafólks 1. maí

Skoða sem PDF skjalPrenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

1. maí – Látum í okkur heyrast !

Þann 1. maí hefur um árabil verið haldin forvarnardagur Snigla með hópkeyrslu um borgina til að minna aðra vegfarendur á að mótorhjólin eru komin út á göturnar. Þetta ár er engin undantekning og er ætlunin nú sem fyrr að minna rækilega á okkur á götum borgarinnar og á sama tíma vekja athygli á málstað okkar en fyrir alþingi liggur frumvarp til nýrra umferðarlaga, þar sem lítið tillit er tekið til athugasemda mótorhjólamanna.
Safnast verður saman á Laugaveginum frá klukkan 10:30, hann fylltur af mótorhjólum upp úr öllu (Laugarvegur verður lokaður umferð á meðan) Keyrslan sjálf leggur af stað 11:30 niður Bankastræti og þaðan um Vonarstræti milli alþingis og ráðhúss Reykjavíkur, þar sem ætlunin er að láta aðeins heyrast í hjólunum og / eða flauta til að vekja athygli á málstað okkar. Leiðin liggur svo um Hringbraut, Bústaðaveg, Kringlumýrarbraut og Reykjanesbraut áður en keyrslan endar í Kauptúni gengt IKEA.

Aksturslýsing:
Fyrstu hjólin munu safnast saman við mót Bankastrætis og Laugavegar og þannig mynda röð eftir Laugaveginum. Búist er við á milli 600-1000 mótorhjólum svo að ef það fer að teygjast á hópnum er hægt að beina nokkrum hjólum upp á Skólavörðustíg. Mæting hjólanna er á milli 10:30 og 11:15 og mun keyrslan renna af stað stundvíslega kl 11:30. Ekið verður niður Bankastrætið og beygt til vinstri Lækjargötuna og svo til hægri inn Vonarstrætið. Ekin er Suðurgatan til vinstri og eftir henni að hringtorginu á Hringbraut sem verur lokað tímabundið. Hringbrautin er ekin að Bústaðavegi og Bústaðavegur að Kringlumýrarbraut. Kringlumýrarbraut er ekin að brúnni á Arnarneshæð þar sem ekið er til vinstri eftir Arnarnesvegi gegnum Garðabæ að nýju Reykjanesbrautinni. Loks er ekið eftir Reykjanesbrautinni að slaufunni við kauptún og endar keyrslan fyrir utan Kauptún



Segðu frá þessu á:
Facebook!
 

Tilbúinn árekstur

Skoða sem PDF skjalPrenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

Um kl 13:00 verður mótorhjól látið falla úr 10 metra hæð til að líkja eftir árekstri mótorhjóls við fastan hlut á um það bil 50 km/klst. Fallið ætti að sýna vel höggið við árekstur mótorhjóls.
Hjólið verður til sýnis eftir „áreksturinn“ á sýningunni Burnout 2010 og „droppið“ verður myndað á high speed video vélar að hætti Mythbusters.


Segðu frá þessu á:
Facebook!
 

Íslandsmeistaramótið í hjólafimi - vegleg verðlaun

Skoða sem PDF skjalPrenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

Klukkan 14:00 verður haldið Íslandsmeistaramót í hjólafimi. Keppt verður í tímamældri þrautabraut, þar sem úrslitin ráðast á tíma og tækni, en refsistig verða gefin fyrir villur í brautinni.  Keppt verður á 125cc hjólum sem verða á svæðinu til að tryggja jafnræði.
Verðlaunin eru ekki af verri endanum  
1. Verðlaun – 60.000 kr. Bensín úttekt frá Orkunni
2. Verðlaun – Hjálmur frá Suzuki umboðinu
3. Verðlaun – 20.000 kr. Gjafabréf frá IKEA
Stigahæsta kona – Dagsferð með Biking Viking mótorhjólaleigunni
Stigahæsti karl – Dagsferð með Biking Viking mótorhjólaleigunni

Hægt er að skrá sig til keppni með því að senda póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða á staðnum fyrir keppni. Skilyrði fyri þátttöku er að vera með mótorhjólapróf.
Sýning


Segðu frá þessu á:
Facebook!
 

Glæsileg sýning

Skoða sem PDF skjalPrenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

Dagana 30. apríl til 2. maí verður haldin Burnouthelgin 2010 sem er samstarfsverkefni Snigla, Kvartmíluklúbbsinns og BÍKR. Burnouthelgin 2010 mun bjóða upp á dagskrá við allra hæfi og þar á meðal sýningarviðburð sem verður sennilega sá stærsti síðan Sýningarhöllin Ártúnshöfða var og hét. BÍKR mun standa fyrir brautarrallý af bestu gerð og fleiri uppákomum á Samskipasvæðinu við Holtagarða.  Á sýningunni verða sýnd um 200 tæki, sportbílar, kvartmílutæki og þar af um 100 mótorhjól á tæplega 8000 fermetrum.
Gamalt og sérstakt er markmið Snigla með mótorhjólahluta sýningarinnar en mótorhjól verða sýnd á um 2500 fermetrum og markmiðið að draga fram bæði gömul og sérstök mótorhjól. Á  sýningunni verða margir fallegir gripir sem sumir hverjir hafa ekki verið sýndir áður svo sem Hendeson 1918 gert upp af Grími Jónssini. Ýrr í Tatoo bike verður með Airbrush á sýningunni og sprautar og selur boli. Einnig verða hjól sem hafa verið skreytt með Airbrush á sýningunni. Kynning verður á Mótorhjólasafni Íslands og margir gripir safnsins á svæðinu.
Innkoma Snigla af þessari sýningu mun öll renna til Mótorhjólasafns íslands (www.motorhjolasafn.is) og forvarnarverkefna á vegum umferðarnefndar samtakanna. Umferðarnefnd mun meðal annars dreifa límmiðum með áletruninni „Sérðu mótorhjól? – Líttu aftur!“ til að setja í bílrúður á sýningunni.

Ef þú hefur áhuga á að sýna hjól á sýningunni, hafðu samband við Berg í Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  



Segðu frá þessu á:
Facebook!
 

Biker Ball á vegum NO-CLUB

Skoða sem PDF skjalPrenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

Eftir að hafa hjólað frá okkur mest allt vit í hópkeyrslunni um daginn þá ætlum við að skemmta frá okkur því viti sem eftir er að kvöldi 1. maí á Players Kópavogi. Rokk/blues bandið Síðasti Séns leikur fyrir dönsum og djammi með DJ Mikkólf sér til halds og trausts.
Miðaverði hefur verið stillt í hóf og inn kostar litlar 1500 krónur íslenskar. Ekki þýðir að borga með erlendum gjaldeyri, við komust hvort eð er ekkert út til að eyða honum.  Bandið samanstendur af þaulreyndum djammhundum sem marga fjöruna hafa sopið og DJ Mikkólfur hefur sopið þær tvær eða þrjár, enda fjöru áhuga maður mikill.

Rokk, Ról og Mótorhjól.



Segðu frá þessu á:
Facebook!
 

Vöfflupartý

Skoða sem PDF skjalPrenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

Við Skutlur eignuðumst okkar fyrsta heimili í febrúar s.l. og eftir smá tiltekt,þrif,málningarvinnu og söfnun á húsgögnum þá ætlum við að bjóða í kaffi og vöfflur á laugardaginn n.k. á mill 16 og 18 að Ármúla 19 bakhús (bak við Glóey)

Allir velkomnir



Segðu frá þessu á:
Facebook!
 

LÍM dagurinn.

Skoða sem PDF skjalPrenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

Sumardaginn fyrsta síðastliðinn var Landsamband Íslenskra Mótorhjólaklúbba stofnað, skammstafað LÍM. Samband þetta er ætlað að vera vettvangur þar sem allir mótorhjólaklúbbar geta komið að með sínar skoðanir á þeim málum sem snúa að mótorhjólafólki almennt. Þetta er ekki á neinn hátt félag eða klúbbur heldur vettvangur þar sem hjólamenn, sem er ört vaxandi hópur, geta fengið stuðning við málefni sem þau berjast fyrir s.s. öryggi mótorhjólamanna. Má segja að um eins konar hringborð sé að ræða þar sem allir klúbbar landsins geta sent einn forsvarsmann með sitt atkvæði. 

Föstudaginn 28 ágúst verður haldinn LÍM dagurinn á Ingólfstorgi, ætlunin er að  stefna sem flestum mótorhjólamönnum niður í miðbæ Reykjavíkur, þar sem LÍM verður kynnt. Eftir það verða tónleikar þar sem nokkrar hljómsveitir sem tengjast mótorhjóla-menningunni stíga á stokk. Þar munu spila Stormur í aðsigi, Chernobil, Þrusk og Sniglabandið. Vinsamleg tilmæli til allra klúbba, samtaka og félaga að mæta og það tímalega svo að við getum loks sýnt Íslendingum að  við hjólafólk getum staðið saman. 
 
Heimasíða LÍM er www.lim.is.



Segðu frá þessu á:
Facebook!
 

Nokkur mikilvæg atriði varðandi bifhjól

Skoða sem PDF skjalPrenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

Einn af nútíma vorboðum eru ökumenn, sem þeysa um götur og vegi klæddir hlífðarfatnaði, hjálmi og tilheyrandi, sitjandi á járngrind sem á eru fest tvö hjól og mótor. Þessi lýsing á farartækinu er ekki mjög aðlagandi eða sexý. Hún er það að minnsta kosti ekki í hugum margra fyrr en því er gefið nafnið mótorhjól. Þá verður til í hugum margra sterk tilfinning sem tengist frelsi og þeirri sérkennilegu kennd að hafa malandi mótor á milli fóta sér.
En þetta frelsi má ekki vera á kostnað þess að komast heill heim. Það má ekki heldur verða til þess að skerða frelsi annarra vegfarenda til að komast leiðar sinnar slysalaust. Ökumenn bera ábyrgð á fleirum en sjálfum sér.


Segðu frá þessu á:
Facebook!
 

Bifhjól í miðborginni

Skoða sem PDF skjalPrenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

Reykjarvíkurborg og lögregla óska eftir samstarfi við bifhjólafólk varðandi umferð og akstur bifhjóla um miðborgina. Aðallega snýst þetta um hraðakstur á Sóleyjagötu og Skothúsvegi, en einnig það að mörg hjólanna eru ansi hávær. Reykjarvíkurborg og lögreglu hefur borist talsvert af kvörtunum þess efnis. Vilja þessir aðilar beina þeirri áskorun til bifhjólafólks að virða reglur um hámarkshraða og taka sérstaklega tillit til þess að margar götur í miðborginni eru íbúðagötur. Það er ekki hagur bifhjólafólks að takmarkanir verði settar á akstur bifhjóla um miðborgina, né að gripið verði til aðgerða gegn hávaða. Gaflarar skora því á allt hjólafólk sem á leið um miðborgina á hjólum að virða þessa áskorun og taka tillit til þeirra sem búa í miðborginni.

 



Segðu frá þessu á:
Facebook!
 

Í minningu Skutlusystur

Skoða sem PDF skjalPrenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

Við Skutlur kveðjum með söknuði eina systur okkar, Svanhvíti Rósu Þráinsdóttur, sem lést þann 7. maí sl. eftir stutt en erfið veikindi. Við sendum innilegar samúðarkveðjur til eiginmanns hennar, dóttur, foreldra, bróður og allra nánustu aðstandenda. Megi Guðs blessun og kærleikur umvefja þau á erfiðum tíma.

Margar minningar koma upp í hugann er við lítum tilbaka til þess tíma sem við eyddum með Svanhvíti. Hún var þátttakandi og meðlimur í klúbbnum nánast frá upphafi og lét sig varða allt sem fram fór innan hans. Við munum margar eftir dugnaði hennar þegar lög félagsins voru skráð, henni leist ekkert á gaufið í okkur hinum svo hún tók málin í sínar hendur, settist við tölvuna og hamraði hratt. Fyrr en varði höfðu lögin sprottið fram og við stóðum hjá, gapandi. Ákveðni hennar og kraftur sýndi sig margoft á meðal okkar. Í einni hringför okkar um landið varð Svanhvít fyrir því óláni að detta illa á síðasta áfangastað, Akureyri, og kenndi hún sér meins í hendi. Hún beit þó á jaxlinn og hjólaði ótrauð 400 km heim án þess að æmta. Í ljós kom að höndin var brotin en hvað var eitt beinbrot á milli vina? Hver man ekki eftir rauðu skónum sem dregnir voru fram úr ferðatöskunni á þungarokkshátíðinni Eistnaflug á Neskaupsstað? Svanhvít málaði bæinn bleikan, dró upp óþekktarkortið og splæsti skoti á línuna. Og ekki má gleyma tertunni sem hún keypti á Systrakaffi á Kirkjubæjarklaustri. Allar höfðum við litið tertuna girndaraugum áður en við settumst að snæðingi og margar langaði að fá sér bita. Svanhvít lét hik annarra ekkert á sig fá heldur keypti alla tertuna og bar fram fyrir okkur. Þakklætið skein að sjálfsögðu úr augum okkar er við gæddum okkur á gómsætri kökunni. Þessar minningar og margar fleiri munu ylja okkur Skutlum um ókomna tíð, enda þar af nógu að taka.

Þau orð sem í okkar huga einkenndu Svanhvíti voru kraftur, áræðni, dugnaður og gleði. Hvað sem hún tók sér fyrir hendur þá fylgdi hugur hennar allur með, ekkert hálfkák heldur ákveðni og drifkraftur. Það snerti okkur allar illa að heyra af veikindum hennar fyrr á þessu ári. Engin okkar gerði sér þó grein fyrir alvarleika sjúkdómsins og því varð fráfall hennar mikið áfall. Við vottum nánustu fjölskyldu og öllum aðstandendum samúð okkar og biðjum þeim Guðs blessunar. Minningin um Svanhvíti mun aldrei fölna.



Segðu frá þessu á:
Facebook!
 

Hjólin eru komin - Gáðu tvisvar

Skoða sem PDF skjalPrenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar



Segðu frá þessu á:
Facebook!
 

Fyrsta skóflustungan af Bifhjólasafni

Skoða sem PDF skjalPrenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar


Fysta skóflustungan af bifhjólasafni sem byggja á í minningu Heiðars Jóhannssonar (Heidda #10) var tekin í hádeginu í dag við mikinn fögnuð gesta á Hjóladögum á Akureyri.Notaðar voru tíu samanhlekkjaðar skóflur við gjörninginn en þær voru mannaðar nýju mönnum ásamt Heiðari sjálfum (í anda) á þeirri tíundu.
Skóflurnar mönnuðu, bræður Heiðars Jón Dan, Rúnar og Guðmundur Jóhannssynir, ásamt besta vini Heiðars, Axel Stefáns, frænda hans Jóa Rækju safnstjóra, Stefáni Finnbogasyni og Kristjáni Þór Júlíussyni fyrrverandi bæjarstjóra á Akureyri og Þingmanni.
Safnið sem verður rúmir 800 fermetrar fullbyggt verður byggt í tveimur áföngum og eru teikningarnar stórglæsilegar.
Bifhjólafólki er óskað til hamingju með áfangann, en undirbúningur fyrir safnið er búinn að standa frá því að Heiðar lést af slysförum 2006


Segðu frá þessu á:
Facebook!
 

KIA styður Skutlurnar

Skoða sem PDF skjalPrenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

KIA styður við ferð Skutlanna um landið með því að leggja til Kia Carens bifreið sem mun hýsa allan farangur skutlanna. Við stýrið verður Ásthildur Skutlumamma og er bensínfótur hennar þegar farinn að titra af tilhlökkun. Skutlurnar þakka Heklu frábæran stuðning. Nú vantar okkur bara smellið nafn á gripinn. smelltu hérna og komdu með hugmynd.

Skutlumamma, Ásthildur Kristín Einarsdóttir (t.v.) og Íris Sigurðardóttir, tóku við lyklum að Kia Carens bifreiðinni sem mun fylgja Skutlunum eins og skugginn á leið þeirra um landið.



Segðu frá þessu á:
Facebook!
 

Er líf bifhjólafólks minna virði?

Skoða sem PDF skjalPrenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

Umræða hefur átt sér stað undanfarið um fyrirætlaðar breytingar á þjóðvegum í nágrenni Reykjavíkur.  Mjög lítið hefur farið fyrir sjónarmiðum bifhjólafólks þrátt fyrir að ýmsir aðilar hafa komið að máli, þar á meðal aðilar sem eiga með öllu réttu að gæta hagsmuna þessa ört stækkandi hóps.  Svokölluð hagsmunasamtök bifhjólafólks þegja þunnu hljóði og það sama má segja um tryggingarfélög, Umferðaráð og Vegagerðina.  Ruddar hafa nú fengið sig fullsadda og vilja í eitt skipti fyrir öll koma sjónarmiðum bifhjólafólks á framfæri.  Þrátt fyrir að yfirvöld hafi einhliða ákveðið að gera skuli Suðurlandsveg að svokölluðum 2+2 vegi hafa ýmsir aðilar haldið kostum 2+1 vegar á lofti og tafið eðlilegan framgang þessa máls.  Aðallega er verið að bera saman kostnað og byggingartíma og því haldið fram að 2+1 lausn sé hagkvæmari.  Með hagkvæmni er átt við fjölda mannslífa sem bjargast í bílslysum en spurningin er hvort líf bifhjólamanns sé ekki nógu mikils virði?
Það sem mestu máli skiptir er að tryggja öryggi allra sem um veginn fara með einum eða öðrum hætti – hvort sem ferðast er í bíl eða á bifhjóli.  Fram til þessa virðist sem öryggi bílfarþega vegi þyngra því helstu rök fyrir 2+1 lausninni er aðgreining akstursstefna og þar með líkur á árekstrum bifreiða úr gagnstæðri átt minnkaðar til muna.  Óhjákvæmileg afleiðing 2+1 leiðarinnar er einhverskonar bygging vegriðs á milli akreina og hefur víravegrið oft borið á góma í þeirri umræðu.  Víravegrið er að okkar mati einhver mesti skaðvaldur sem litið hefur dagsins ljós og á hiklaust að banna.  Þrátt fyrir að víravegrið auki eflaust öryggi bílfarþega í árekstri við aðra bifreið úr gagnstæðri átt, auka þau mjög líkur á dauðsfalli þeirra sem falla á bifhjólum í nágrenni þeirra.  Erlendis hefur mikil umræða verið vegna víravegriða en þar hafa orðið skelfileg slys þar sem ökumenn bifhjóla hafa einfaldlega skorist í tvennt eða misst útlimi eftir að hafa lent á þeim.  Það eru sjálfsögð réttindi að fá að aka um á vegum sem eru líka öruggir fyrir bifhjólafólk og er það krafa okkar að víravegrið í Svínahrauni verði tekið niður sem fyrst.

Aðgreining aksturstefna í kringum höfuðborgarsvæðið er ein mikilvægasta samgöngubót sem allir geta hugsað sér – líka fyrir bifhjólafólk.  En aðgreining akstursstefna er ekki öryggisbót fyrir bifhjólafólk ef víravegrið er notað til aðgreiningar því það skapar hættu fyrir þá sem nota bifhjól sem ferðamáta.  Á sama tíma og Vegagerðin í samráði við FÍB og Umferðastofu vinnur að EURORAP áætluninni til að bæta öryggi á vegum út heldur Vegagerðin áfram að setja um víravegrið víðsvegar um landið.  Ekki er nóg með að verið sé að setja upp víravegrið á milli akreina heldur er því einnig komið fyrir í vegkannti, þar sem hættuminna væri að aka útaf en að lenda á vegriðinu.  Á nýafstöðnum morgunverðarfundi Lýðheilsustöðvar var öryggi á vegum rætt og hvergi af álits bifhjólafólks leitað.  Bifhjólafólk mun ekki sitja hjá aðgerðalaust ef ætlun yfirvalda er að auka lífslíkur bílfarþega á kostnað bifhjólafólks!  Gripið verður til réttlátra mótmælaaðgerða af okkar hálfu verður ekki hlustað á okkar rök í þessu máli og okkar réttur virtur.
Kostir 2+1 vegar umfram 1+1 veg í augum bifhjólafólks eru engir.  Í báðum tilvikum er vegrið af einhverju tagi notað til aðgreiningar sem er okkur stórhættulegt.  Ef vegrið er ekki til staðar eru allir ökumenn, sama á hvaða ökutæki ekið er, í stórhættu þar sem aðgreining er engin.  Eina lausnin sem bifhjólafólk sættir sig við er tvöföldun eins og ákveðið hefur verið af yfirvöldum.  Bifhjólafólk borgar skatta og gjöld af sínum farartækjum og mikill meirihluti þeirra er líka bifreiðaeigendur.  Við krefjumst þess að tekið verði tillit til aksturs bifhjóla um þau umferðamannvirki sem verða byggð í framtíðinni og að ekki sé litið á bifhjólafólk sem minnihlutahóp sem verður að fórna lífi sínu fyrir öryggi farþega og ökmenn bifreiða.

Óskar Páll Þorgilsson, tæknifræðingur
Höfundur er Ruddi
www.ruddar.com

Greinin birtist í Morgunblaðinu 26.mars 2008 og er birt hér með leyfi höfundar



Segðu frá þessu á:
Facebook!
 

Skutlur - kvæði eftir Dr-Björn

Skoða sem PDF skjalPrenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

Image 

Skutlur hafa sett í gang   
Svaka fína síðu 
Fljótt þær færast mjög í fang 
Fylla og allt með blíðu 

                                           Dr-Björn


Segðu frá þessu á:
Facebook!
 
Sumarið 2007 skelltum við okkur hringinn í kringum landið. Ferðin var alveg geggjuð og margt skondið gerðist. Hérna getur þú lesið ferðasöguna 2007. 
Árið 2008 endurtókum við leikinn og fórum annan hring. Ferðin var frábær í alla staði og Skutlurnar skemmtu sér hið besta. Hérna getur þú lesið ferðasöguna 2008. 

Þetta árið er stefnan tekinn á "hálf"-hring norður og er ætlunin að þeysa um nærsveitir norðurlands okkur og öðrum til skemmtunar. Fylgstu með ferðasögunni.