Innskráning

Skutlubloggið

A short description about your blog

Sýning Rafta :)

Posted by: Fanney Gísladóttir

Tagged in: Skutla bloggar

Fanney Gísladóttir

Skutlur tóku sig til og fóru hjólarúnt uppí Borgarnes á mótorhjólasýningu Rafta í dag.  Vorum í fyrstu að velta rokinu fyrir okkur en létum okkur hafa það, og viti menn Skutlur eru jú hörkutól og láta ekki vindkviður við Hafnarfjall stoppa sig.  Sýningin var myndarleg hjá Röftum og sumar versluðu líka í Icebike í leiðinni þar sem Skutlur láta nú ekki svona búðir fram hjá sér fara.   Fórum svo í sjoppuna að borða sem mér finnst reyndar nauðsynlegt í svona ferð :)  
Takk fyrir daginn Raftar :)


Sumarið framundan........

Posted by: Fanney Gísladóttir

Tagged in: Skutla bloggar

Fanney Gísladóttir

Nú hafa Skutlur haldið aðalfund sem gékk mjög vel í alla staði.  Nokkrar lagabreytingar voru samþykktar og kosið í nefndir. Sú nýbreytni var á fundinum að þegar allar voru sáttar við breytingar eða nefndir var það samþykkt með því að fundarstjóri lifti glasi og var vel tekið undir það og verður þetta föst hefð hér eftir.  Eftir fundin var slegið á létta strengi borðaður góður matur frá saffran og spjallað um heimsmál.  Sumarið er framundan með blóm í haga eins og einhver sagði og hlakka okkur mikið til að geta farið að snurfusta í kringum hjólin og undirbúa þau fyrir sumarið og eru reyndar margir byrjaðir á því, t.d. er ein okkar búin að  hreinsa bólu lagerin á höfuðborgarsvæðinu og víðar. Þar sem við erum komin með húsnæði sem nefnt hefur verið Skutlukot og er miðsvæðis í Reykjavík, verður gaman í sumar að hittast þar í kaffi og fara saman að hjóla útí verður og vind.  Tala nú ekki um að geta grillað saman í sumar.   Margt skemmtilegt framundan hjá okkur þ.e.a.s. ferðalög um Ísland og hver veit nema við leggjum land undir fót og förum til Eyja eins planið er......

Lífið er yndislegt ........

Bestu hjólakveðjur,  Fanney Gísla.


Takk fyrir mig.......

Posted by: Fanney Gísladóttir

Tagged in: Skutla bloggar

Fanney Gísladóttir


Nú er ég úr leik í Skutluferðinni Norður í land !!!   Dagur 1 var frábær og skemmtileg hjólaleið  sem við fórum og áttum yndislegan dag saman :) Dagur 2 lofaði góðu í góðu veðri og góðum félagsskap :)  EN í einni beyjunni á leið til Siglufjarðar rann ég til í möl og púff og plamm allt búið í hjólaferðinni fyrir Fanneyju :(

Ég vil senda hjartans þakkir til ykkar sem voru á slysstað og héldu í hendina á mér og allt Skutluliðið fyrir aðstoðina :)  Það var vel tekið ámóti mér á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar og færi ég þeim þakkir.  Einnig voru þau yndisleg Minna og Óli að taka ámóti okkur í súpu og skinkuhorn, svo reddaði Óli mönnum með sér og sóttu hjólið mitt, takk fyrir það strákar :)

Ég á eftir að sakkna ykkar svakalega, eigið góða helgi SKUTLUR  "ride on".


Sumarið 2007 skelltum við okkur hringinn í kringum landið. Ferðin var alveg geggjuð og margt skondið gerðist. Hérna getur þú lesið ferðasöguna 2007. 
Árið 2008 endurtókum við leikinn og fórum annan hring. Ferðin var frábær í alla staði og Skutlurnar skemmtu sér hið besta. Hérna getur þú lesið ferðasöguna 2008. 

Þetta árið er stefnan tekinn á "hálf"-hring norður og er ætlunin að þeysa um nærsveitir norðurlands okkur og öðrum til skemmtunar. Fylgstu með ferðasögunni.