Innskráning

Skutlubloggið

A short description about your blog

Æfingin skapar meistarann

Posted by: Lísa María Karlsdóttir

Tagged in: Untagged 

Lísa María Karlsdóttir

 
Við Skutlur erum sko skutlur.  Eigum sumar líka Endurohjól eða motocrosshjól.  Ég segi eigum því mitt hefur mest verið upp á punt.   Fór bara tvisvar á það síðasta sumar.
 Í gær kom svo að því (í fyrsta skipti í sumar)  að nú skildi rifja upp fyrri takta.  Hehehe það hafa nú reyndar aldrei verið svo sem neinir taktar, mar bara skrölti einhvern veginn á hjólinu.
Þar sem ákveðið hafði verið að yngri sonurinn fengi að prófa hjólið keyrði ég það út á Geldinganes.  Alveg löglegt því hjólið á númerum og ég með próf.    Hugsanirnar sem þutu í gegnum höfuðið á leiðinni voru: Hjúkkit ég þurfti ekki að stoppa á ljósunum - hvaða gangtruflanir eru þetta - oh það drapst á því í beygjunni - best að færa það svo ég sé ekki fyrir.  Það er ekki bara ýtt á start takka til að setja svona hjól í gang.  Það er svo kallað "kick start" þú setur það í gang með því að stíga fast/hratt á start sveif.  Það er ekki alltaf auðvelt.


Snjókarlarnir

Posted by: Lísa María Karlsdóttir

Tagged in: Untagged 

Lísa María Karlsdóttir

Jæja þá kom að því.  Í dag klukkan 5 ákvað ég í þessu líka góða veðri að fara út að hjóla.  Allar götur þurrar og frábært veður.  Hringdi í karlinn og sagði honum að drífa sig nú úr vinnunni.  Leið og beið og ég setti hjólin út og byrjaði að finna dótið til.  LOKSINS kl.19:30 var karlinn tilbúin að fara.  Þegar við komum út þá var byrjað að snjóa á hjólin en við létum það ekki á okkur fá og drifum okkur af stað. 


Sumarið 2007 skelltum við okkur hringinn í kringum landið. Ferðin var alveg geggjuð og margt skondið gerðist. Hérna getur þú lesið ferðasöguna 2007. 
Árið 2008 endurtókum við leikinn og fórum annan hring. Ferðin var frábær í alla staði og Skutlurnar skemmtu sér hið besta. Hérna getur þú lesið ferðasöguna 2008. 

Þetta árið er stefnan tekinn á "hálf"-hring norður og er ætlunin að þeysa um nærsveitir norðurlands okkur og öðrum til skemmtunar. Fylgstu með ferðasögunni.