Innskráning

Skutlubloggið

A short description about your blog

laugardagur

Posted by: Sigurlaug S. Einarsdóttir

Tagged in: Skutla bloggar

Sigurlaug S. Einarsdóttir


Hæ Skutlurnar mínar.Takk fyrir frábæra daga. Ég hjólaði í skítakulda heim á laugardagskvöldið. Holtavörðuheiðin var erfið, kalt og þvílík þoka að ég sá varla stikurnar og svo í ofanálag kom móða á hjálminn þannig að ég opnaði hann og þá grét ég alla leiðina yfir því vindurinn var að pirra augun svo vægt sé til orða tekið. Ég var köld í gegn þegar ég kom loks heim um 1:30. En það var hrikalega gaman að hjóla þetta, engin umferð og ég tók aðeins fram úr þremur á leiðinni sem reyndar náðu mér á heiðinni því ég eiginlega skreið þar yfir. Gott að þið áttuð gott kvöld/nótt. Hlakka til að heyra meira frá ykkur og góða skemmmtun áfram já og góða ferð.

Veit ekki hvort þetta kemst á bloggið, ég er  ennþá að læra á þetta.

Kv. Sigurlaug


Sumarið 2007 skelltum við okkur hringinn í kringum landið. Ferðin var alveg geggjuð og margt skondið gerðist. Hérna getur þú lesið ferðasöguna 2007. 
Árið 2008 endurtókum við leikinn og fórum annan hring. Ferðin var frábær í alla staði og Skutlurnar skemmtu sér hið besta. Hérna getur þú lesið ferðasöguna 2008. 

Þetta árið er stefnan tekinn á "hálf"-hring norður og er ætlunin að þeysa um nærsveitir norðurlands okkur og öðrum til skemmtunar. Fylgstu með ferðasögunni.